Mac mini (M6 eða M5 Pro) Aflrofi
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)
Torx Plus 2IP-hálfmánabiti, 25 mm
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Losun
Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Notið bláa átaksmælinn og 2IP-bita til að fjarlægja 2IP-skrúfurnar fjórar (923-12082) úr aflrofaborðinu á botnhulstrinu.

Lyftið aflrofaborðinu upp af botnhulstrinu.

Fjarlægið aflrofann úr botnhulstrinu.

Samsetning
Staðsetjið aflrofann í botnhulstrinu.
Mikilvægt: Gangið úr skugga um að aflrofinn sé rétt staðsettur, eins og sýnt er.

Staðsetnið aflrofaborðið yfir aflrofanum og látið skrúfugötin í aflrofaborðinu flútta við skrúfugötin í botnhulstrinu.

Notið bláa átaksmælinn og 2IP-bitann til að skrúfa 2IP-skrúfurnar fjórar (923-12082) aftur í aflrofaborðið.


Snúið botnhulstrinu við til að ganga úr skugga um að aflrofinn flútti við efri hluta botnhulstursins. Þrýstið síðan á aflrofann til að tryggja að hann smelli.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: