MacBook Neo Sveigjanlegur kapall Touch ID-millistykkis

Áður en hafist er handa

null Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • ESD-örugg töng

  • Nælonnemi (svartur teinn) (valfrjálst)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið ESD-örugga töng eða svarta teininn til að spenna upp lásarminn á enda sveigjanlega kapals myndavélarinnar/birtuskynjarans (ALS)/skjásins. Takið enda sveigjanlega kapalsins úr sambandi. Lyftið síðan sveigjanlega kaplinum úr svamprásinni eins og sýnt er.

  2. Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja löngu svampstykkin þrjú úr topphulstrinu.

  3. Notið slétta enda svarta teinsins til að fjarlægja allar svampleifar af lyklaborðshlífinni.

  4. Notið slétta enda svarta teinsins til að spenna upp lásarminn á tengi sveigjanlegs kapals Touch ID-millistykkis á móðurborðinu. Takið síðan enda sveigjanlega kapalsins úr sambandi.

  5. Notið ESD-örugga töng til að spenna upp lásarminn á tengi sveigjanlega kapals Touch ID-spalds á sveigjanlega kaplinum fyrir Touch ID-millistykki. Takið síðan enda sveigjanlega kapalsins fyrir Touch ID-spjald úr sambandi.

  6. Fjarlægið sveigjanlega kapal Touch ID-millistykkisins varlega frá og með svarta teininum eftir þörfum. Fjarlægið síðan sveigjanlega kapalinn úr topphulstrinu.

Samsetning

  1. Fjarlægið límfilmuna á nýjum sveigjanlegum kapli Touch ID-millistykkis sem er undir enda sveigjanlega kapalsins sem tengist sveigjanlega kaplinum fyrir Touch ID-spjald.

    • null Varúð: Ekki fjarlægja hinar þrjár límfilmurnar af sveigjanlegum kapli Touch ID-millistykkis strax.

  2. Stingið endanum á sveigjanlegum kapli Touch ID-spjaldsins í tengið á sveigjanlegum kapli Touch ID-millistykkisins. Lokið síðan lásarminum.

  3. Stingið endanum á sveigjanlegum kapli Touch ID-millistykkisins í tengið á móðurborðinu. Lokið síðan lásarminum.

  4. Fjarlægið hinar þrjár límfilmurnar á sveigjanlegum kapli Touch ID-millistykkisins.

  5. Þrýstið á sveigjanlegan kapal Touch ID-millistykkisins á svæðunum þremur sem sýnd eru í 30 sekúndur til að festa sveigjanlega kapalinn við skjöldinn.

  6. Fjarlægið langa svampinn af botnfilmunni eins og sýnt er, en haldið efri filmunni á sínum stað.

  7. Setjið langa svampinn í topphulstrið eins og sýnt er.

    • Látið vinstri brún langa svampsins flútta lóðrétt við vinstri brún rafhlöðunnar.

    • Látið botnstykkið á langa svampinum flútta lárétt meðfram brún rafhlöðubakkans.

  8. Þrýstið eftir lengd svampstykkjanna þriggja til að festa þau við lyklaborðshlífina.

  9. Flettið efri filmunni af langa svampinum.

  10. Stingið enda sveigjanlega kapals myndavélarinnar/ALS/skjásins í tengið. Lokið síðan lásarminum.

  11. Þrýstið sveigjanlegum kapli myndavélarinnar/ALS/skjásins í svamprásina.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: