iPad Air 13-tommur (M4) Fremri myndavél
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlaðna áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
44 mm hálfmánastjörnubiti
ESD-örugg töng
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (svartur, 0,35 kgf. cm)
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Losun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Notið átaksmæli og stjörnubita til að fjarlægja stjörnuskrúfuna úr tengihlíf fremri myndavélarinnar. Fjarlægið svo tengihlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

Lyftið enda sveigjanlega kapals fremri myndavélarinnar úr tenginu á móðurborðinu.

Notið svarta teininn til að lyfta fremri myndavélinni úr hulstrinu.

Samsetning
Varúð
Klæðist hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar.
Notið etanólþurrku eða IPA-þurrku til að hreinsa allar límleifar af svæðinu í kringum fremri myndavélina í hulstrinu.


Skoðið nýju fremri myndavélina. Ef hlífin á linsu myndavélarinnar eða myndavélinni er skemmd skal skipta um fremri myndavélina.

Fjarlægið límfilmuna aftan á fremri myndavélinni. Komið svo fremri myndavélinni fyrir inni í hulstrinu þannig að límhliðin snúi niður.

Ýtið varlega á fremri myndavélina og haldið henni niðri í 10 sekúndur til að líma hana við hulstrið.

Ýtið enda sveigjanlegs kapals fremri myndavélarinnar í tengið.

Setjið tengihlíf fremri myndavélarinnar yfir endann á sveigjanlegum kapli fremri myndavélarinnar. Notið síðan svarta átaksmælinn og stjörnubitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (452-05343) í tengihlífina.

Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja hlífina af fremri myndavélinni rétt áður en skjárinn er settur á aftur.
Varúð: Snertið ekki myndavélarlinsuna eftir að verndarhlífin er fjarlægð.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: