TrueDepth-myndavél fyrir iPad Pro 13 tommu (M5)
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnusvæði og meðhöndlun rafhlaðna áður en hafist er handa.
TrueDepth-myndavélin inniheldur einn eða fleiri geisla. Sundurhlutun eða skemmdir á TrueDepth-myndavélinni eða ef ekki eru notaðir upprunalegir Apple-varahlutir getur leitt til útsetningar fyrir hættulegum innrauðum geislum sem geta valdið skaða á augum eða húð.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
44 mm hálfmánabiti með krosshaus
ESD-örugg töng
Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)
Nítrílhanskar eða lófríir hanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (svartur, 0,35 kgf cm)
Torx Plus 3IP 25 mm biti
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Mikilvægt
Ef skip er um þennan hlut er mælt með því að keyra Viðgerðaraðstoð til að virkja öryggiseiginleika. Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið.
Losun
Athugið: Ef sundurhlutunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.
Fjarlægið hlífarnar af tengihlíf TrueDepth-myndavélarinnar og geymið þær fyrir samsetningu.

Notið átaksmæli og krosshausabita til að fjarlægja krosshausaskrúfurnar fjórar úr tengihlíf TrueDepth-myndavélarinnar. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 3IP-bita til að fjarlægja tvær 3IP-skrúfur úr TrueDepth-myndavélinni. Lyftið svo endunum þremur á sveigjanlegum köplum TrueDepth-myndavélarinnar af tengjunum.

Losið svo varlega um TrueDepth-myndavélina til að fjarlægja hana úr hulstrinu.

Samsetning
Varúð
Klæðist hönskum til að forðast að óhreinka myndavélarlinsurnar.
Notið etanólþurrku eða IPA-þurrku til að hreinsa allar límleifar af svæðinu í kringum TrueDepth-myndavélina.

Flettið límfilmunni af neðri hluta nýja jarðtengingarlímbandsins. Leggið jarðtengingarlímbandið yfir myndavélina eins og sýnt er.

Skoðið nýju TrueDepth-myndavélina. Skiptið um TrueDepth-myndavélina ef hlífarnar eða myndavélin er skemmd.

Komið TrueDepth-myndavélinni fyrir í myndavélaropinu á hulstrinu.
Þrýstið endunum á þremur sveigjanlegum köplum TrueDepth-myndavélarinnar í tengin.

Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 11,5 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og 3IP-bita til að skrúfa tvær nýjar 3IP-skrúfur í TrueDepth-myndavélina.
Ein skrúfa (452-11658) (vinstra megin)
Ein skrúfa (452-11659) (hægra megin)

Komið tengihlíf TrueDepth-myndavélarinnar fyrir yfir TrueDepth-myndavélinni. Notið síðan svarta átaksmælinn og krosshausabitann til að skrúfa fjórar nýjar krosshausaskrúfur í tengihlífina.
Ein skrúfa (452-11654) (lengst til vinstri)
Ein skrúfa (452-12756) (fyrir miðju vinstra megin)
Ein skrúfa (452-11666) (fyrir miðju hægra megin)
Ein skrúfa (452-11654) (lengst til hægri)

Setjið hlífarnar á tengihlíf TrueDepth-myndavélarinnar aftur á sinn stað.

Flettið neðri filmunni af nýja svampinum. Þrýstið svampinum á TrueDepth-myndavélina, eins og sýnt er. Fjarlægið síðan efri filmuna af svampinum.

Flettið neðri filmunni af nýja límbandinu. Þrýstið límbandinu á TrueDepth-myndavélina, eins og sýnt er. Fjarlægið síðan efri filmuna af límbandinu.

Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja hlífarnar af TrueDepth-myndavélinni.
Varúð: Ekki snerta linsur myndavélarinnar þegar hlífin hefur verið tekin af.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Mikilvægt
Viðgerðaraðstoðin er í boði í tækinu þegar öllum samsetningarskrefum er lokið og hennar er krafist til að virkja öryggiseiginleika. Upplýsingar um hvernig á að ræsa viðgerðaraðstoð.
Athugið: Ef viðgerðaraðstoð hefur ekki verið keyrð gæti varahluta- og þjónustuferill tækisins sýnt stöðu íhlutar sem „ljúka viðgerð“ og Apple Diagnostics fyrir viðgerð í sjálfsafgreiðslu kann að sýna stöðu íhlutar sem „óþekkt“.