Varahlutaþjónusta fyrir Mac mini
Íhlutirnir sem notaðir eru við viðgerð geta haft veruleg áhrif á öryggi, vernd og afköst tækisins. Varahluta- og þjónustuferill, sem finna má í kerfisstillingum í macOS Tahoe 26.0 eða nýrri, veitir upplýsingar um viðgerðarferil tækisins fyrir flesta stærstu hlutina.
Gerðir varahluta
Upprunalegir Apple-varahlutir
Upprunalegir Apple-varahlutir eru nýir varahlutir frá Apple sem hafa farið í gegnum strangt hönnunar- og prófunarferli til að uppfylla öryggis- og afkastastaðla okkar.
Upplýsingar um hvernig eigi að panta upprunalega Apple-varahluti er að finna á support.apple.com/self-service-repair.
Notaðir Apple-varahlutir
Notaðir Apple-varahlutir eru upprunalegir íhlutir sem teknir hafa verið úr fyrirliggjandi tæki af sömu gerð. Notaðir Apple-varahlutir sem eru í góðu ástandi geta skilað sömu afköstum og öryggi og nýir upprunalegir Apple-varahlutir. Þar sem þessir varahlutir koma ekki frá Apple, og eru því af óþekktum uppruna, geta gæði þeirra hins vegar verið breytileg vegna fyrri notkunar eða breytinga.
Notaðir Apple-varahlutir og viðgerðir sem gerðar eru með notuðum Apple-varahlutum falla ekki undir vöruábyrgð Apple eða AppleCare-tryggingu.
Varahlutir frá þriðju aðilum
Þriðju aðilar kunna að halda því fram að sínir varahlutir séu samhæfir við Apple-vörur. Ekki er víst að þessir varahlutir skili sömu afköstum og upprunalegir Apple-varahlutir eða notaðir Apple-varahlutir og hugsanlega kunna þeir að ógna persónuvernd eða öryggi.
Apple mun ekki gera varahlut frá þriðja aðila óvirkan nema hann hafi áhrif á öryggi og persónuvernd viðskiptavina.
Varahlutir frá þriðju aðilum og viðgerðir sem gerðar eru með varahlutum frá þriðju aðilum falla ekki undir vöruábyrgð Apple eða AppleCare-tryggingu.
Stuðningur við notaða Apple-varahluti
Eftirfarandi Mac mini-gerðir styðja notaða Apple-varahluti fyrir upptalda íhluti.
Mac mini (2024) | Mac mini (M6 eða M5 Pro) | |
|---|---|---|
Tengiborð loftnets | ✓ | ✓ |
Loftnetsplata | ✓ | ✓ |
Hljóðspjald | ✓ | ✓ |
Rafhlaða | ✓ | ✓ |
Botnhulstur | ✓ | ✓ |
Vifta | ✓ | ✓ |
Fremri USB-C tengi | ✓ | ✓ |
Hús | ✓ | ✓ |
Aflrofi | ✓ | ✓ |
Aflgjafi | ✓ | ✓ |
Hátalari | ✓ | ✓ |
SSD-eining | ✓ | |
Wi-Fi loftnet | ✓ | ✓ |