Öryggi rafhlöðu í Beats

 Viðvörun

  • Tækið inniheldur innbyggt litíumjónarafhlöðu. Öryggi rafhlöðu er það sem þarf helst að huga að þegar gert er við tæki með innbyggðri litíumjónarafhlöðu.

  • Aðeins tæknimenn með þekkingu, reynslu og verkfæri sem þarf til að gera við rafeindatæki ættu að skipta um rafhlöðu.

  • Mælt er með að nota aðeins nýjar rafhlöður. Notaðar rafhlöður geta skemmst þegar þær eru fjarlægðar.

  • Ef ranglega er staðið að skiptum á rafhlöðum, þær ekki meðhöndlaðar rétt, rafhlöður eru ekki tæmdar áður en viðgerð fer fram eða meðfylgjandi leiðbeiningum er ekki fylgt getur það valdið ofhitnun rafhlöðu, þrútnun, losun, leka eða varmatilviki. Þessi tilvik geta valdið eldsvoða, líkamstjóni, dauða, gagnatapi eða skemmdum á tækinu, íhlutum eða öðrum eignum.

  • Til að forðast þessi hugsanlega skaðlegu tilvik skal fylgja öryggisleiðbeiningum rafhlöðunnar og vinna á öruggu vinnusvæði með þeim verkfærum sem talin eru upp hér að neðan. Það er mikilvægt að vera undirbúin(n) fyrir allar mögulegar aðstæður.

Hvernig á að setja upp vinnusvæði með öryggi rafhlöðu í huga

Verkfæri

  • Hreinn, þurr og ómeðhöndlaður sandur (8–10 bollar)

  • Sandílát (stórt op, auðvelt að hella úr, óbrjótanlegt plastílát með opnanlegu loki)

  • Hitaþolnir hanskar

  • Hlífðargleraugu með hliðarhlífum

Vinnusvæði þar sem gert er við Beats-tæki þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Eldþolinn vinnubekkur

  • Að minnsta kosti 60 cm fjarlægð frá pappír og öðrum eldfimum efnum

  • Sandílát innan seilingar (60 cm) á báðum hliðum vinnusvæðisins, ekki yfir vinnusvæðinu

  • Fullnægjandi loftræsting

Hvernig á að bregðast við varmatilviki rafhlöðu

 Viðvörun

Varmatilvik rafhlöðu er hröð efnakeðjuverkun sem á sér stað inni í rafhlöðusellu. Orkan í rafhlöðunni losnar skyndilega, sem getur valdið útgösun og eldi. Varmatilvik rafhlöðu getur orðið vegna efnislegra skemmda á rafhlöðunni, þegar rangt er staðið að skiptum á rafhlöðu eða viðgerðum eða vegna hitastigs sem er utan starfssviðs rafhlöðunnar.

Bregðast verður strax við ef einhverjar af eftirfarandi vísbendingum um varmatilvik koma í ljós:

  • Litíumjónarafhlaðan eða tæki sem inniheldur hana byrjar að gefa frá sér reyk, neista eða sót.

  • Rafhlöðupokinn blæs skyndilega út.

  • Litíumjónarafhlaðan eða tæki sem inniheldur hana byrjar að gefa frá sér hvæsandi hljóð eða smelli.

Kæfið rafhlöðuna eða tækið strax með miklu magni af hreinum, þurrum sandi. Hellið sandinum á öllum í einu. Tímasetning er mikilvæg - því hraðar sem öllum sandinum er hellt, því fyrr stöðvast tilvikið.

Hafið samband við slökkviliðsyfirvöld á staðnum ef þörf er á frekari aðstoð.

Farið út úr herberginu í 30 mínútur eftir að tilvikið hefur verið stöðvað. Loftræstið svæðið. Ekki snúa aftur á svæðið fyrr en allur reykur hefur verið ræstur út.

Bíðið í 30 mínútur áður en tækið er snert. Notið hitaþolnu hanskana og öryggisgleraugun með hliðarhlífum til að fjarlægja tækið úr sandinum.

Fargið skemmdu rafhlöðunni eða tækinu (þar með talið rusli sem hefur verið fjarlægt úr sandinum) í samræmi við staðbundin umhverfislög og reglur.

Hvernig á að meðhöndla rafhlöður

 Viðvörun

Áður en þú hefur viðgerð, ef tækið er virkt, skaltu tæma rafhlöðuna að fullu með því að spila hljóð með Bluetooth þar til tækið gefur til kynna að lítil hleðsla sé eftir. Afhlaðin rafhlaða er ekki eins viðkvæm fyrir varmatilviki. Ef ekki er hægt að skera úr um hleðslustöðu rafhlöðunnar skal ekki gera við tækið.

Besta verklag

  • Til að forðast skaðlegar gufur eða varmatilvik rafhlöðu skal ekki gata, slá í eða kremja litíumjónarafhlöðu eða tæki sem inniheldur hana.

  • Ekki hafa aðskotahluti og beitta hluti á vinnusvæðinu.

  • Farið varlega þegar beitt verkfæri eru notuð nálægt rafhlöðunni.

  • Ekki skilja lausar skrúfur, aukaskrúfur eða litla hluta eftir inni í tækinu.

  • Ekki nota verkfæri sem leiða rafmagn.

  • Ekki kasta rafhlöðunni eða missa hana.

  • Ekki láta rafhlöðuna verða fyrir miklum hita eða sólarljósi eða hitastigi sem er utan starfssviðs rafhlöðunnar.

  • Meðhöndlið og fargið ónýtum rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglur.

Birt: