Fljótleg úrræðaleit fyrir iPad

Fljótleg úrræðaleit vegna allra vandamála

Prófið að fylgja þessum skrefum áður en haldið er áfram í sértæka úrræðaleit.

  1. Gangið úr skugga um að varnarfilma, hulstur, hanski eða skjápenni séu ekki að valda truflunum. Snertið skjáinn með fingurgómunum, ekki nöglunum.

  2. Hreinsið skjáinn með mjúkum, örlítið rökum, lófríum klút. Ef þarf skal hreinsa allan iPad vandlega.

    • Mikilvægt: Takið fyrst alla kapla úr sambandi og slökkvið á iPad. Ekki nota vörur sem innihalda bleikiefni eða vetnisperoxíð. Forðist að raki komist í op og ekki skal setja iPad í vökva sem inniheldur hreinsiefni. Notið ekki þrýstiloft.

  3. Athugið hvort óhreinindi eru í iPad-hleðslutenginu. Hreinsið tengið varlega með litlum mjúkum bursta sem er ekki úr málmi. Gangið úr skugga um að burstinn sé hreinn og þurr. Notið passlega mörg hár á burstanum til að komast inn í tengið. Snúið hárunum til að losa um og ná út óhreinindum. Burstið óhreinindi frá tenginu til að koma í veg fyrir að þau berist í tengið.

    • Mikilvægt: Takið fyrst alla kapla úr sambandi og slökkvið á iPad. Ekki nota vörur sem innihalda bleikiefni eða vetnisperoxíð. Forðist að raki komist í op og ekki skal setja iPad í vökva sem inniheldur hreinsiefni. Notið ekki þrýstiloft.

  4. Notið samhæfan hleðslukapal til að tengja iPad við straumbreyti sem er í sambandi við rafmagn. Ekki stinga iPad-spjaldtölvunni í samband við tölvu til að hlaða hana eða reyna að hlaða hana þráðlaust. Hlaðið iPad-spjaldtölvuna í 10 mínútur eða þar til mynd birtist á skjánum.

    • Athugið: iPad-spjaldtölvan gæti hafa farið í djúpa afhleðslustöðu sem krefst hleðslu í 20 til 30 mínútur til að kveikja á henni. Hleðslutáknið ætti að sjást eftir tveggja mínútna hleðslu.

  5. Endurræsið iPad. Ef iPad endurræsist ekki skal prófa að þvinga endurræsingu á tækinu.

  6. Tryggið að hugbúnaður tækisins sé uppfærður áður en frekari úrræðaleit er sinnt. Uppfærið iPad ef nauðsyn krefur.

  7. Finnið viðeigandi hluta hér á eftir og lesið hjálpargreinarnar til að leysa vandamálið.

  8. Ef vandamálið leysist ekki eftir að búið er að lesa allar viðeigandi hjálpargreinar og fylgja öllum skrefum úrræðaleitar skal endurheimta verksmiðjustillingar iPad og setja tækið upp aftur. Sjá einnig Ef villa birtist þegar iPhone-, iPad- eða iPod-tæki er uppfært og Villur í uppfærslu og endurheimt iOS.

    •  Varúð: Endurheimt iPad veldur því að öll gögn verða fjarlægð úr tækinu. Tryggið að tekið hafi verið öryggisafrit af iPad áður en tækið er endurheimt.

Fleiri tilföng

Lesið þessar hjálpargreinar áður en haldið er áfram með sértæka úrræðaleit.

Birt: