MacBook Air (13 tommu, M3, 2024) Rafhlaða

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)

  • Lím fyrir rafhlöðu

  • Jöfnunarverkfæri fyrir sveigjanlegan rafhlöðukapal

  • Pressuplata rafhlöðu og stoðumgjörð

  • ESD-örugg töng

  • Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)

  • iPhone-skjápressa

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf cm)

  • Torx Plus 44 mm 3IP-hálfmánabiti

  • Torx Plus 25 mm 3IP-biti

  • Torx Plus 25 mm 4IP-biti

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Athugið: Nýrri rafhlöðu fylgir rafhlöðulím sem er hægt að panta sér.

Losun

Athugið: Ef losunarskrefum er þegar lokið skal fara beint í samsetningu.

  1. Notið bláa átaksmælinn og 44 mm 3IP-hálfmánabita til að fjarlægja 3IP-skrúfurnar tvær (923-10367) úr tengihlíf snertiborðsins.

  2. Takið endann á sveigjanlegum kapli snertiborðsins úr sambandi við tengið.

  3. Notið stillanlega 10–34 Ncm átaksmælinn og 4IP-bita til að fjarlægja 4IP-skrúfurnar tvær (1) úr rafhlöðubakkanum.

  4. Notið stillanlega átaksmælinn og 25 mm 3IP-bita til að fjarlægja 3IP-skrúfurnar tvær (2) úr rafhlöðubakkanum.

    • 923-10387 (1)

    • 923-10375 (2)

  5. Notið ESD-örugga töng til að grípa um fyrri límflipa rafhlöðunnar (1). Flettið límflipanum varlega af topphulstrinu.

  6. Notið ESD-örugga töng til að grípa um seinni límflipa rafhlöðunnar (2). Flettið límflipanum varlega af topphulstrinu.

  7. Togið í báða límaflipa rafhlöðunnar til að fletta þeim af rafhlöðubakkanum og topphulstrinu (3).

    • Mikilvægt: Þegar gripið er um báða límflipa rafhlöðunnar skal toga límborðann örlítið upp á við og fram yfir brún topphulstursins þar til allur límborðinn hefur verið fjarlægður (4). Togið hægt í límborðann. Ekki láta límborðann snerta brún topphulstursins þegar hann er fjarlægður. Ekki teygja um of á límborðanum. Færið takið nær rafhlöðunni ef þess gerist þörf.

  8. Endurtakið skref 5 til 7 til að fjarlægja hina þrjá límborðana á rafhlöðunni (2-4). Haldið svo áfram að skrefi 9.

    •  Viðvörun:

      • Ef flipi eða límborði slitnar og hann er ennþá sýnilegur skal fjarlægja alla aðra límborða sem eftir eru. Reynið síðan að sækja borðann sem rifnaði með ESD-öruggri töng.

      • Ef flipi sést ekki eða límborði slitnar og ekki er hægt að sækja hann skal ekki spenna rafhlöðuna upp með valdi. Hættið viðgerð og skoðið Öryggi rafhlöðu. Skipta þarf um topphulstur og rafhlöðu til að ljúka viðgerðinni.

  9. Haldið utan um brúnir rafhlöðuloksins og lyftið því frá topphulstrinu.

  10. Flettið sveigjanlegum kapli snertiborðsins varlega af topphulstrinu (1, 2).

    •  Varúð: Ekki brjóta saman eða krumpa sveigjanlega kapalinn.

  11. Lyftið rafhlöðunni varlega og styðjið við hana neðanverða.

    • null Viðvörun: Höndlið sýnilegar brúnir samstæðunnar af varkárni þegar rafhlaðan er fjarlægð og henni skipt út.

    •  Varúð: Ekki snerta miðja rafhlöðuna (sýnt með rauðu). Meðhöndlið aðeins rafhlöðuna í rafhlöðubakkanum.

  12. Grípið um sveigjanlega rafhlöðukapalinn og rennið honum undan móðurborðinu (1) um leið og rafhlöðunni er lyft úr topphulstrinu (2).

    •  Varúð: Fjarlægið ekki rafhlöðuna úr rafhlöðubakkanum.

    •  Varúð: Ekki snerta miðja rafhlöðuna (sýnt með rauðu). Meðhöndlið aðeins rafhlöðuna í rafhlöðubakkanum.

Samsetning

  1. Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa allar límleifar af topphulstrinu.

  2. Brjótið saman flipana á límborðum rafhlöðunnar um 90 gráður á punktalínunni eins og sýnt er. Fjarlægið síðan límörkina.

  3. Setjið rafhlöðulímið yfir horn topphulstursins eins og sýnt er.

  4. Þrýstið límborðum rafhlöðunnar á topphulstrið.

  5. Endurtakið skref 3 og 4 til að festa annað rafhlöðulímið á hitt horn topphulstursins. Haldið svo áfram að skrefi 6.

  6. Látið rafhlöðuna síga í topphulstrið á meðan sveigjanlega rafhlöðukaplinum er rennt varlega undir móðurborðið. Gangið úr skugga um að sveigjanlegi kapallinn flútti við tengi sveigjanlega rafhlöðukapalsins á móðurborðinu.

    •  Viðvörun: Fjarlægið ekki rafhlöðuna úr rafhlöðubakkanum.

    •  Varúð: Ekki snerta miðja rafhlöðuna (sýnt með rauðu). Meðhöndlið aðeins rafhlöðuna í rafhlöðubakkanum.

  7. Setjið pinna jöfnunarverkfæris sveigjanlegs rafhlöðukapals við hliðina á skrúfugötunum eins og sýnt er (1).

  8. Leggið verkfærið flatt þegar jöfnunarpinnunum er stungið í skrúfugötin (2).

  9. Ýtið enda sveigjanlegs kapals rafhlöðunnar í tengið (3).

    • Mikilvægt: Gangið úr skugga um að pólýesterfilman sé límd á enda sveigjanlega rafhlöðukapalsins.

  10. Setjið rafhlöðulokið á rafhlöðuna.

  11. Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 4IP-bita til að skrúfa 4IP-skrúfurnar tvær (923-10387) lauslega aftur í efri hornin á rafhlöðubakkanum.

    •  Varúð: Til að koma í veg fyrir skemmdir á rafhlöðubakkanum í eftirfarandi skrefum skal ekki skrúfa skrúfurnar aftur í með meira en tveimur snúningum réttsælis.

  12. Fjarlægið rafhlöðulokið af rafhlöðunni og setjið til hliðar.

  13. Hallið rafhlöðubakkanum (1) örlítið upp og styðjið við hann með annarri hendi.

    •  Varúð: Ekki halla rafhlöðunni upp meira en 2,5 cm því annars gæti rafhlöðubakkinn beygst þar sem skrúfurnar tvær hafa verið festar lauslega í (2).

  14. Undir annarri hlið rafhlöðubakkans skal nota ESD-örugga töng til að ná taki á samanbrotna flipanum á filmunni á rafhlöðulíminu. Flettið svo filmunni af límborðum rafhlöðunnar. Endurtakið þetta skref á hinni hliðinni.

  15. Leggið síðan rafhlöðuna í topphulstrið.

  16. Setjið rafhlöðulokið á rafhlöðuna.

  17. Stillið herslugildi stillanlega átaksmælisins á 16 Ncm. Notið síðan stillanlega átaksmælinn og 25 mm 3IP- bitann til að skrúfa 3IP-skrúfurnar tvær (923-10375) (1) aftur í rafhlöðubakkann.

  18. Haldið gildi átaksmælisins í 16 Ncm. Notið síðan átaksmælinn og 4IP-bita til að skrúfa 4IP-skrúfurnar tvær (923-10387) (2) alveg aftur í rafhlöðubakkann.

  19. Fjarlægið jöfnunarverkfæri sveigjanlega rafhlöðukapalsins.

  20. Notið ESD-örugga töng til að grípa um pólýesterfilmuna á sveigjanlega rafhlöðukaplinum. Togið svo flipann beint upp til að lyfta endanum á sveigjanlegum kapli rafhlöðunnar úr tenginu.

    • Mikilvægt: Gætið þess að flipa pólýesterfilmunnar sé lyft beint upp. Ef flipinn rifnar skal nota flata endann á svarta teininum til að taka endann á sveigjanlega rafhlöðukaplinum af tenginu.

    • null Varúð: Til að koma í veg fyrir skemmdir skal bíða í 1 mínútu þar til móðurborðið er afhlaðið áður en haldið er áfram.

  21. Ýtið enda sveigjanlega kapals snertiborðsins í tengið.

  22. Ýtið sveigjanlega kapli snertiborðsins varlega á svæðin tvö sem sýnd eru til að festa hann við topphulstrið.

  23. Komið tengihlíf snertiborðsins fyrir.

  24. Notið bláa átaksmælinn og 44 mm 3IP-hálfmánabita til að skrúfa 3IP-skrúfurnar tvær (923-10367) aftur í tengihlíf snertiborðsins.

  25. Fjarlægið rafhlöðulokið af rafhlöðunni og setjið það til hliðar.

  26. Opnið skjáinn. Leggið svo tölvuna í stoðumgjörðina þannig að skjárinn hangi niður af borðendanum.

  27. Látið götin á pressuplötu rafhlöðunnar flútta við pinna stoðumgjarðarinnar. Lækkið pressuplötuna á rafhlöðuna.

    •  Varúð: Gætið þess að sveigjanlegur kapall snertiborðsins liggi sléttur á rafhlöðunni til að skemma hann ekki með pressuplötunni.

    • Null Varúð: Komið pressuplötunni fyrir á rafhlöðunni þannig að mjúku púðarnir hvíli á rafhlöðunni.

  28. Komið stoðumgjörðinni fyrir í iPhone-skjápressunni.

  29. Gætið þess að stoðumgjörðin passi rétt við bakhlið iPhone-skjápressunnar.

  30. Dragið arminn niður þar til hann læsist.

  31. Bíðið þar iPhone-skjápressan gefur frá sér hljóðmerki og tímastillirinn sýnir 0. Dragið arminn lítillega niður (1) og togið út losunarhnúðinn (2). Lyftið síðan arminum (3).

  32. Fjarlægið stoðumgjörðina úr iPhone-skjápressunni. Komið stoðumgjörðinni fyrir nálægt borðbrúninni þannig að skjárinn hangi yfir brúninni. Lyftið svo pressuplötunni af rafhlöðunni.

  33. Fjarlægið tölvuna úr stoðgrindinni. Lokið skjánum og komið tölvunni fyrir þannig að skjárinn vísi niður.

  34. Ef losunarfilmur eru á límflipum rafhlöðunnar skal nota ESD-örugga töng til að fjarlægja filmurnar.

  35. Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta límflipum rafhlöðunnar á topphulstrið.

  36. Setjið rafhlöðulokið á rafhlöðuna. Ýtið síðan opunum á rafhlöðulokinu á skrúfurnar í topphulstrinu þar til smellur heyrist.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: