iMac (24 tommu, 2023, fjögur tengi) Háhraða sveigjanlegur kapall

Áður en hafist er handa

Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Stoðfleygssett (076-00507)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

  1. Komið húsinu fyrir þannig að móðurborðið snúi upp.

  2. Togið í flipann til að opna lásarminn á tengispjaldsenda háhraða sveigjanlega kapalsins (1). Takið síðan enda háhraða sveigjanlega kapalsins úr tenginu á tengispjaldinu (2).

  3. Togið í flipann til að opna lásarminn á háhraða sveigjanlega kaplinum (1). Takið síðan enda háhraða sveigjanlega kapalsins úr tenginu á móðurborðinu (2).

  4. Setjið slétta enda svarta teinsins undir háhraða sveigjanlegan kapal til að losa límið milli sveigjanlega kapalsins og hússins.

Samsetning

  1. Stingið móðurborðsenda háhraða sveigjanlega kapalsins í tengið á móðurborðinu (1). Lokið síðan lásarmi háhraða sveigjanlega kapalsins (2).

  2. Setjið tengispjaldsenda háhraða sveigjanlega kapalsins í tengið á tengispjaldinu (1). Lokið síðan lásarmi háhraða sveigjanlega kapalsins (2).

  3. Þrýstið á samanbrotið horn sveigjanlega kapalsins til að festa hann við húsið.

    • Mikilvægt: Ef skipt er um háhraða sveigjanlegan kapal skal fjarlægja límfilmuna af sveigjanlega kaplinum. Þrýstið síðan á samanbrotið horn sveigjanlega kapalsins til að festa hann við húsið.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: