MacBook Air (15 tommu, M2, 2023) USB-C-spjöld

Áður en hafist er handa

Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)

  • Límband á tengihlíf inntaks-/úttakstengis

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti

  • Torx Plus 5IP 50 mm biti

  • USB-C hleðslukapall

Athugið: Myndirnar í þessu verklagi sýna fjarlægingu og ísetningu á aðeins einu USB-C-spjaldi. Hins vegar er verklagið það sama fyrir bæði spjöldin.

Losun

  1. Notið slétta enda svarta teinsins til að fletta upp neðra hægra horni límbandsins á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Flettið síðan límbandinu af tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Fleygið límbandinu.

  2. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að fjarlægja þrjár 3IP skrúfur (923-08925) úr tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

  3. Notið slétta enda svarta teinsins til að lyfta endanum á sveigjanlega USB-C kaplinum af tenginu.

  4. Lyftið endanum á sveigjanlega USB-C kaplinum (1) og notið svarta teininn til að losa um límið (2). Flettið síðan sveigjanlega USB-C kaplinum af topphulstrinu.

  5. Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að fjarlægja tvær 5IP skrúfur (923-08978) úr USB-C-spjaldinu.

  6. Hallið USB-C-spjaldinu upp og lyftið því úr topphulstrinu.

Samsetning

  1. Ef skipt er um USB-C-spjald þarf að fletta filmunni af sveigjanlega kaplinum.

  2. Setjið USB-C-spjaldið í topphulstrið.

  3. Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að skrúfa tvær 5IP skrúfur (923-08978) lauslega í USB-C-spjaldið.

  4. Stingið öðrum enda USB-C hleðslusnúrunnar í tengið (1) til að tryggja að USB-C spjaldið sitji rétt. Stillið af USB-C-spjaldið þar til auðvelt er að stinga enda kapalsins inn og fjarlægja hann.

    •  Hætta: Gangið úr skugga um að USB-C hleðslukapallinn sé ekki tengdur við rafmagn.

  5. Stillið herslugildi stillanlega átaksmælisins á 11,5 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að skrúfa tvær 5IP skrúfur (2) alveg í USB-C-spjaldið.

  6. Fjarlægið USB-C hleðslukapalinn.

  7. Notið slétta enda svarta teinsins til að þrýsta sveigjanlega kapli USB-C-spjaldsins varlega á USB-C-spjaldið (1). Ýtið svo enda sveigjanlegs USB-C kapals í tengið (2).

  8. Haldið sveigjanlega kapli USB-C-spjaldsins niðri í 10 sekúndur til að festa hann við topphulstrið.

  9. Setjið tengihlíf inntaks-/úttakstengisins á enda sveigjanlegu kaplanna.

  10. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa þrjár 3IP skrúfur (923-08925) í tengihlíf inntaks-/úttakstengisins.

  11. Fjarlægið filmuna af límbandinu á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Látið síðan límbandið flútta við hægri brún tengihlífar inntaks-/úttakstengisins eins og sýnt er.

    •  Varúð: Gangið úr skugga um að límbandið á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins nái ekki yfir brún tengihlífarinnar.

  12. Þrýstið meðfram allri lengd límbandsins á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins til að festa það við tengihlíf inntaks-/úttakstengisins.

  13. Flettið efra vinstra horninu á filmunni örlítið til baka. Togið síðan filmuna hægt af límbandinu á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: