MacBook Air (15 tommu, M2, 2023) Skynjari til að opna/loka (AMR)

Áður en hafist er handa

Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • ESD-örugg flísatöng

  • Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur (ísóprópýlalkóhól)

  • Límband á tengihlíf inntaks-/úttakstengis

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti

Losun

  1. Notið slétta enda svarta teinsins til að fletta upp neðra hægra horni límbandsins á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Flettið síðan límbandinu af tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Fleygið límbandinu.

  2. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að fjarlægja þrjár 3IP skrúfur (923-08925) úr tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.

  3. Notið slétta enda svarta teinsins til að lyfta endanum á sveigjanlegum kapli skynjarans til að opna/loka (AMR) af tenginu.

  4. Flettið skynjaranum til að opna/loka (AMR) frá topphulstrinu.

  5. Notið slétta enda svarta teinsins og etanólþurrku eða IPA-þurrku til að fjarlægja afgangslím úr topphulstrinu.

Samsetning

Mikilvægt

Ekki fjarlægja nýja skynjarann til að opna/loka (AMR) úr áfasta jöfnunarverkfærinu.

  1. Notið ESD-örugga töng til að fletta filmunum tveim af nýja skynjaranum til að opna/loka (AMR).

  2. Staðsetjið jöfnunarverkfærið yfir horninu og meðfram hliðarbrún topphulstursins eins og sýnt er.

  3. Ýtið á jöfnunarverkfærið á svæðinu sem sýnt er í 30 sekúndur til að festa sveigjanlega kapal skynjarans til að opna/loka (AMR) við topphulstrið. Lyftið síðan jöfnunarverkfærinu af topphulstrinu.

  4. Notið svarta teininn til að staðsetja endann á sveigjanlega kapli skynjarans til að opna/loka (AMR) yfir tenginu. Ýtið svo enda kapalsins í tengið.

  5. Setjið tengihlíf inntaks-/úttakstengisins á enda sveigjanlegu kaplanna.

  6. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa þrjár 3IP skrúfur (452-09337) aftur í tengihlíf inntaks-/úttakstengisins.

  7. Fjarlægið filmuna af límbandinu á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins. Látið síðan límbandið flútta við hægri brún tengihlífar inntaks-/úttakstengisins eins og sýnt er.

    •  Varúð: Gangið úr skugga um að límbandið á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins nái ekki yfir brún tengihlífarinnar.

  8. Þrýstið meðfram allri lengd límbandsins á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins til að festa það við tengihlíf inntaks-/úttakstengisins.

  9. Flettið efra vinstra horninu á filmunni örlítið til baka. Togið síðan filmuna hægt af límbandinu á tengihlíf inntaks-/úttakstengisins.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: