MacBook Air (15 tommu, M2, 2023) Loftnet
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:
Verkfæri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm)
Verkfæri fyrir loftnet
ESD-örugg flísatöng
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm)
Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti
Torx Plus 4IP biti
![](https://cdsassets.apple.com/live/SZLF0YNV/service-documentation/ssr/mba-15-m2-2023-j415/104038-antenna/000_RP1959_Ant_Locator_V1.jpg)
Losun
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að fjarlægja tvær 3IP skrúfur (923-08925) úr tengihlíf samása loftnetskapalsins. Fjarlægið hlífina og geymið hana fyrir samsetningu.
Notið svarta teininn til að lyfta öðrum endanum á samása loftnetskaplinum af tenginu.
Notið svarta teininn til að lyfta hinum endanum á samása loftnetskaplinum af tenginu.
Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og 4IP bita til að fjarlægja 4IP skrúfurnar tvær (923-09236) úr loftnetinu.
Lyftið loftnetinu úr topphulstrinu eins og sýnt er.
Samsetning
Setjið loftnetið í topphulstrið.
Notið svarta teininn eða ESD-örugga töng til að setja annan endann á samása loftnetskaplinum yfir tengið eins og sýnt er (1). Notið síðan bitlausa enda loftnetsverkfærisins til að þrýsta endanum á samása loftnetskaplinum á tengið (2).
Svarti teinninn notaður
ESD-örugg töng notuð
Notið svarta teininn eða ESD-örugga töng til að setja hinn endann á samása loftnetskaplinum yfir tengið eins og sýnt er (1). Notið síðan bitlausa enda loftnetsverkfærisins til að þrýsta endanum á samása loftnetskaplinum á tengið (2).
Svarti teinninn notaður
ESD-örugg töng notuð
Leggið tengihlíf samása loftnetskapalsins yfir enda samása loftnetskaplanna.
Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa tvær 3IP skrúfur (923-08925) í tengihlífina.
Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 19 Ncm. Notið stillanlega átaksmælinn og 4IP bita til að skrúfa tvær 4IP skrúfur (923-09236) í loftnetið.
Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu: