iMac (24 tommu, 2023, fjögur tengi) Rafhlaða

Áður en hafist er handa

Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Stoðfleygssett (076-00507)

  • Átaksmælir (grænblár, 0,75 kgf. cm) (923-08085)

  • Torx Plus 3IP hálfmánabiti (923-08468)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Mikilvægt

Þessi gerð þarf tvær CR2016 rafhlöður. Kaupa má nýjar rafhlöður hjá söluaðilum raftækja.

Losun

  1. Komið húsinu fyrir þannig að móðurborðið snúi upp.

  2. Komið slétta enda svarta teinsins fyrir undir kaplinum fyrir rafhlöðuspjaldið og nálægt tenginu. Lyftið kapalenda rafhlöðuspjaldsins af tenginu.

  3. Notið grænbláa átaksmælinn og 3IP hálfmánabita til að fjarlægja tvær 3IP skrúfur (923-09787) úr rafhlöðulokinu. Fjarlægið síðan rafhlöðulokið.

  4. Fjarlægið rafhlöðuna úr húsinu.

Samsetning

 Viðvörun: Setjið aðeins í CR2016 rafhlöðu. Hætta er á sprengingu ef rafhlaðan er sett rangt í eða skipt út fyrir nýja rafhlöðu af rangri tegund. Notuðum rafhlöðum skal farga í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir.

  1. Komið húsinu fyrir þannig að móðurborðið snúi upp.

  2. Setjið rafhlöðuna í rafhlöðuspjaldið með jákvæðu (+) hliðina upp.

  3. Setjið rafhlöðulokið á rafhlöðuna.

  4. Notið grænbláa átaksmælinn og 3IP hálfmánabita til að skrúfa tvær 3IP skrúfur (923-09787) aftur í rafhlöðulokið.

  5. Stingið kapalenda rafhlöðuspjaldsins í tengið.

Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:

Birt: