MacBook Pro (16 tommu, nóv. 2023) Viftur

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

  • Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi pahluta áður enhafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm) (923-02995)

  • ESD-örugg flísatöng

  • Nemi úr næloni (svartur teinn) (922-5065)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm) (923-0448)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti (923-08468)

  • Torx Plus 5IP 50 mm biti (923-08673)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Mikilvægt: Í þessu verklagi þarf skrúfuhlífar (923-10114) sem fylgja með varahlut, en einnig er hægt að panta þær sér.

Athugið:

  • Skrefin og myndirnar í þessu verklagi sýna fjarlægingu og ísetningu á báðum viftunum. Hins vegar er hægt að skipta um hvora viftu fyrir sig.

Losun

  1. Notið slétta enda svarta teinsins til að fletta sveigjanlega kapli hægri viftunnar varlega af topphulstrinu. Endurtakið þetta skref til að fletta sveigjanlegum kapli vinstri viftunnar af topphulstrinu.

  2. Notið ESD-örugga töng til að fletta af skrúfuhlífunum fjórum af miðskrúfunum fjórum.

    • Mikilvægt: Ekki endurnýta skrúfuhlífar. Nýjar skrúfuhlífar (923-10114) fylgja með varahlutum, en einnig er hægt að panta þær sér.

  3. Notið svarta teininn til að hreinsa límleifar af viftunum.

  4. Notið bláa átaksmælinn og Torx Plus 3IP bitann til að fjarlægja fjórar 3IP skrúfur (923-06960) úr viftunum.

  5. Notið stillanlega átaksmælinn og Torx Plus 5IP bita til að fjarlægja fjórar 5IP skrúfur (923-06929) úr viftunum.

  6. Fjarlægið vifturnar frá topphulstrinu.

Samsetning

  1. Staðsetjið viftuna á sinn stað í topphulstrinu. Látið skrúfugötin á viftunum passa við skrúfugötin á topphulstrinu.

  2. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 25 Ncm.

  3. Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að skrúfa fjórar 5IP skrúfur (923-06929) aftur í vifturnar.

  4. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bitann til að skrúfa 3IP skrúfurnar fjórar (923-06960) aftur í vifturnar.

  5. Flettið fjórum nýju skrúfuhlífum (923-10114) af límfilmunni. Staðsetjið skrúfuhlífarnar yfir hverri af skrúfunum fjórum.

  6. Haldið hverri skrúfuhlíf niðri í 15 sekúndur til að festa þær við skrúfurnar fjórar.

  7. Haldið sveigjanlegu viftuköplunum niðri í 15 sekúndur til að festa þá við topphulstrið.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: