MacBook Pro (14 tommu, M3, nóv. 2023) Vifta

Áður en hafist er handa

 Viðvörun

  • Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.

Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:

Verkfæri

  • Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm) (923-02995)

  • Átaksmælir (blár, 0,65 kgf. cm) (923-0448)

  • Torx Plus 3IP 44 mm hálfmánabiti (923-08468)

  • Torx Plus 5IP 50 mm biti (923-08673)

Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.

Losun

  1. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að fjarlægja þrjár 3IP skrúfur (923-06935) úr viftunni.

  2. Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og Torx Plus 5IP bita til að fjarlægja eina 5IP skrúfu (923-06929) úr viftunni.

  3. Fjarlægið viftuna úr topphulstrinu.

Samsetning

  1. Staðsetjið viftuna í topphulstrinu þannig að skrúfugötin í viftunni og topphulstrinu mætist.

  2. Stillið herslugildi 10–34 Ncm stillanlega átaksmælisins á 16 Ncm.

  3. Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að skrúfa eina 5IP skrúfu (923-06929) í viftuna.

  4. Notið bláa átaksmælinn og 3IP bita til að skrúfa þrjár 3IP skrúfur (923-06935) í viftuna.

Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu:

Birt: