MacBook Pro (14 tommu og 16 tommu, nóv. 2023) USB-C-spjöld
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:
14 tommu gerð með M3-flögu
14 tommu gerð með M3 Pro, M3 Max
16 tommu gerð
Verkfæri
Stillanlegur átaksmælir (10–34 Ncm) (923-02995)
Torx Plus 5IP 50 mm biti (923-08673)
USB-C hleðslukapall (661-06670)
Kynnið ykkur ítarlegan lista yfir öll verkfæri sem þarf fyrir allar viðgerðir.
Athugið:
Myndirnar í þessu verklagi sýna fjarlægingu og ísetningu á aðeins einu USB-C-spjaldi. Hins vegar er verklagið það sama fyrir öll USB-C-spjöld.
Losun
Notið 10–34 Ncm stillanlega átaksmælinn og Torx Plus 5IP bita til að fjarlægja tvær 5IP skrúfur (923-06938) úr USB-C-spjaldinu.
Rennið USB-C-spjaldinu úr topphulstrinu.
Samsetning
Setjið USB-C-spjaldið í topphulstrið.
Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að skrúfa 5IP skrúfurnar tvær (923-06938) lauslega aftur í.
Stingið öðrum enda USB-C hleðslusnúrunnar í samband við tengið til að tryggja jöfnun USB-C spjalds. Stillið af USB-C-spjaldið þar til auðvelt er að stinga enda kapalsins inn og fjarlægja hann.
Hætta: Gangið úr skugga um að USB-C hleðslukapallinn sé ekki tengdur við rafmagn.
Stillið herslugildi stillanlega átaksmælisins á 11,5 Ncm.
Notið stillanlega átaksmælinn og 5IP bita til að skrúfa 5IP skrúfurnar tvær alveg í á meðan USB-C hleðslukapallinn er enn tengdur.
Takið USB-C hleðslukapalinn úr sambandi úr tenginu.
Setjið eftifarandihluta aftur í til að ljúka samsetningu:
14 tommu gerð með M3-flögu
14 tommu gerð með M3 Pro, M3 Max
16 tommu gerð