iMac (24 tommu, M1, 2021, tvö tengi) Vifta
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hluta áður en hafist er handa:
Verkfæri
- Sexkantró átaksmælir, 2.5 mm 
- Nemi úr næloni (svartur teinn) 
- Stoðfleygar 
- Torx T3-skrúfjárn 

Losun
- Notið T3 skrúfjárnið til að fjarlægja T3 skrúfur (923-05558) úr viftunni (1). 
- Notið átaksmæli fyrir 2,5 mm sexkantró til að fjarlægja 2,5 mm sexkantróna (923-05573) af móðurborðinu (2).  
- Staðsetjið húsið þannig að bakið liggi niður og efri hlutinn næst þér.  
- Notið ESD-örugga töng til að fletta pólýesterfilmunni af sveigjanlega viftukaplinum.  
- Notið svarta teininn til að spenna upp lásarminn á enda tengisins fyrir sveigjanlega viftukapalinn.  
- Glennið sundur ESD-öruggu töngina og stingið öðrum enda hennar undir sveigjanlega viftukapalinn. Rennið ESD-öruggu tönginni varlega að viftunni til að losa um límið á milli sveigjanlega viftukapalsins og móðurborðsins. - Varúð: Snertið ekki neinn af litlu hlutunum á móðurborðinu. Haldið tönginni samsíða yfirborði móðurborðsins til að koma í veg fyrir skemmdir. 
  
- Stingið svarta teininum undir sveigjanlega viftukapalinn. Togið síðan sveigjanlega viftukapalinn úr sambandi. - Varúð: Ekki beygja eða snúa upp á sveigjanlega viftukapalinn. 
 
- Látið hlífina standa upprétta. 
- Notið átaksmæli fyrir 2,5 mm sexkantró til að fjarlægja níu 2,5 mm sexkantrær af móðurborðinu: - (1–5): (923-05573) 
- (6–9): (923-05556) 
  
- Hallið móðurborðinu örlítið frá hlífinni eins og sýnt er (1). Rennið síðan brún viftunnar undan móðurborðinu til að fjarlægja viftuna úr hlífinni (2). - Varúð: Ekki beygja móðurborðið þegar því er hallað. 
  
Samsetning
- Hallið móðurborðinu aðeins fram (1). Rennið síðan brún viftunnar undir móðurborðið (2). Gangið úr skugga um að skrúfugötin á viftunni og móðurborðinu komi til móts við skrúfugötin á húsinu.  
- Stingið enda sveigjanlegs kapals viftunnar í samband við tengið. Lokið síðan lásarminum. 
- Þrýstið pólýesterfilmunni yfir endann á viftuvírnum 
- Þrýstið á sveigjanlegan kapal viftunnar til að festa hann við móðurborðið. - Mikilvægt: Ef ný vifta er sett upp þarf fyrst að tengja sveigjanlega viftukapalinn við móðurborðið. Fjarlægið síðan filmurnar af sveigjanlega viftukaplinum og þrýstið á hann til að festa hann við móðurborðið. 
  
- Notið T3 skrúfjárnið til að skrúfa T3 skrúfurnar (923-05558) aftur í viftuna. 
- Notið átaksmæli fyrir 2,5 mm sexkantró til að festa 2,5 mm sexkantrærnar tíu aftur á móðurborðið: - (1–6): (923-05573) 
- (7–10): (923-05556) 
  
Setjið eftirfarandi hluti aftur í til að ljúka samsetningu: