Stúdíóskjár — Skjár (millistykki fyrir VESA-festingu)

Áður en hafist er handa

 Hætta

Gangið úr skugga um að rafmagnskapallinn sé ekki í sambandi við rafmagn.

 Viðvörun

Lesið Öryggi vegna brotins glers áður en hafist er handa.

 Varúð

  • Tveir aðilar þurfa að framkvæma hluta af skrefum sundurhlutunar og samsetningar.

  • Sumar myndir sýna að rafmagnskapallinn er ekki tengdur við skjáinn en í þessu ferli á rafmagnskapallinn að vera tengdur við skjáinn.

Verkfæri

  • Límbandsskeri

  • Varahjól fyrir límbandsskera

  • Skjálímborði

  • Skjástandur

  • ESD-örugg flísatöng

  • Etanólþurrkur eða IPA-þurrkur

  • Frauðpoki

  • Nemi úr næloni (svartur teinn)

  • Öryggisgleraugu

  • Sílikonrúlla

  • Límdúkur

  • Frauðstoðir

  • Stoðfleygssett: hallastillanlegur standur

  • Stoðfleygssett: halla- og hæðarstillanlegur standur

 Varúð

Þetta verklag krefst kerfisstillingar. Þú þarft eftirfarandi til að framkvæma kerfisstillingu:

  • Nýjustu útgáfu af Apple-hjálparforritinu sem er uppsett í Mac-tölvu sem keyrir macOS Sonoma (14.1 eða nýrri útgáfu)

  • Internetaðgangur

  • USB-C-hleðslukapall eða USB-A til USB-C-kapall. USB-C-kapall verður að virka fyrir bæði rafmagn og gagnaflutning. Ekki nota Thunderbolt 3-kaplar.

 Varúð

Límbandsskerinn er með varahjól. Líklega þarf að nota nokkur hjól vegna þess að þegar hjól brotnar, beyglast eða verpist verður að skipta um það. Pólýesterfilman á skjánum getur skemmst ef notað er skemmt hjól. Myndin vinstra megin er af skemmdu hjóli og myndin hægra megin er af nýju hjóli.

Mikilvægt

  • Til að fjarlægja skjáinn verður að skera límborða sem festa skjáinn við afturhluta hússins. Hver borði er með frauðlag umlukið tveimur límlögum. Límbandsskerinn er notaður til að skera límborðana og fer mest megnis í gegnum frauðlagið.

  • Fyrir gerðir sem eru stilltar með hallastillanlegum standi eða halla- og hæðarstillanlegum standi skal skoða Skjár (standur)leiðbeiningar um sundurhlutun og samsetningu.

Athugið: Myndirnar í þessu verklagi gætu sýnt skjá með standi. Verklagið er hins vegar það sama fyrir skjá með millistykki fyrir VESA-festingu.

Losun

  1. Leggið skjáinn flatan á stóru frauðstoðirnar og látið skjáinn snúa upp. Skerið límborða skjásins með því að stinga límbandsskeranum á milli skjásins og hússins. Byrjið í horninu og hreyfið hjólið í kringum skjábrúnirnar.

  2. Rennið fingrunum eftir skjábrúninni til að ganga úr skugga um að límið hafi verið skorið af á fullnægjandi hátt. Ef límið er ekki alveg skorið af skal nota límbandsskera til að skera burt það sem eftir er af líminu.

  3. Reisið við skjáinn og látið efri hluta hússins (myndavélarhliðina) standa á borðinu.

  4. Komið stoðfleygunum fyrir framan skjáinn.

    •  Varúð: Þú þarft annan aðila til að aðstoða þig við að ljúka skrefum 5 til 10.

  5. Fáið annan aðila til að halda í afturhlið hússins. Aðskiljið síðan skjáinn varlega frá húsinu og byrjið á neðri hliðinni (fjær myndavélinni).

  6. Aðskiljið hinn hluta skjásins varlega frá húsinu. Þegar skjárinn er losaður frá hönkunum í húsinu skal lyfta upp skjásamstæðunni og láta hana hvíla á stoðfleygunum.

  7. Togið í flipann til að opna lásarminn á sveigjanlegum kapli DisplayPort-merkis (1). Takið síðan enda sveigjanlega kapalsins úr sambandi (2).

    • Mikilvægt: Sveigjanlegur kapall DisplayPort-merkis er með lítið límsvæði sem festist við bakhlið skjásins. Ef sveigjanlegi kapallinn er enn fastur við bakhlið skjásins skal nota svarta teininn til að losa hann.

  8. Takið rafmagnskapal DisplayPort úr sambandi (3).

  9. Togið í flipann til að opna lásarminn (1) á sveigjanlegum kapli myndavélarinnar. Takið síðan enda sveigjanlega kapalsins úr sambandi (2).

  10. Losið kapalenda fyrir baklýsingu skjásins úr tengjunum með því að hreyfa þá til og frá (3).

  11. Setjið skjáinn á skjástandinn.

    • Mikilvægt: Ef skjástandur er ekki fyrir hendi skal leggja framhlið skjásins á hreinan, mjúkan klút. Til að koma í veg fyrir skemmdir á skjánum skal gæta þess að sveigjanlegu kaplarnir snerti ekki klútinn.

  12. Notið ESD-örugga töng til að fletta skjálíminu af bakhlið skjásins eins og sýnt er.

    •  Varúð

      • Til að koma í veg fyrir skemmdir á pólýesterfilmunni á skjánum skal ekki fjarlægja lím af hornum skjásins.

      • Ekki nota etanólþurrkur eða IPA-þurrkur á skjáinn. Etanól eða ísóprópýlalkóhól getur skemmt pólýesterfilmuna.

  13. Notið ESD-örugga töng til að fjarlægja límið af brúnum hússins eins og sýnt er.

  14. Notið etanólþurrkur eða IPA-þurrkur til að hreinsa límleifar af húsinu.

Samsetning

  1. Leggið límborðana á sléttan flöt og athugið hvort þeir séu skemmdir og krumpaðir. Notið hlutarnúmerin á límborðunum til að finna út rétta stöðu límborðanna:

    • Neðri (946-21413) (1)

    • Efri vinstri (946-21414) (2)

    • Efri hægri (946-21415) (3)

    • Hægri (946-21416) (4)

    • Vinstri (946-21417) (5)

    •  Varúð: Skemmdir límborðar geta valdið útlitsgalla og ljósleka. Samloðun skjásins og hússins getur einnig orðið veikari. Skiptið um límborðana ef þeir eru krumpaðir eða skemmdar.

    • Athugið: Límborðar skjásins eru með tvö lög af lími með frauðlagi á milli. Pappírsfilma er yfir borðanum á undirhliðinni og plastfilma er yfir honum á yfirhliðinni. Litirnir á filmunum geta verið mismunandi.

  2. Setjið húsið á frauðstoðirnar og látið innra byrðið snúa upp.

  3. Flettið hluta pappírsfilmunnar af vinstri límborðanum þegar honum er þrýst á brún hússins. Notið síðan slétta enda svarta teinsins til að þrýsta límborðanum þétt að svo hann festist við húsið.

    • Mikilvægt: Gætið þess að mynstur límborðans passi við mynstur hússins.

  4. Endurtakið skref 3 til að setja límborðana á hægra megin, uppi vinstra megin, uppi hægra megin og neðri brúnir hússins. Haldið svo áfram að skrefi 5.

    •  Varúð: Þú þarft annan aðila til að aðstoða þig við að ljúka skrefum 5 til 12.

  5. Fáið annan aðila til að reisa við húsið og láta efri hluta hússins (myndavélarhliðina) standa á borðinu. Setjið stoðfleygana fyrir framan húsið.

  6. Lyftið skjásamstæðunni upp og hvílið hana á stoðfleygunum.

  7. Stingið kapalendum fyrir baklýsingu skjásins (1) í samband við tengin.

  8. Stingið enda sveigjanlega kapals myndavélarinnar í tengið (2). Lokið síðan lásarmi sveigjanlega kapalsins (3).

  9. Stingið rafmagnskapli DisplayPort í samband við tengið (1).

  10. Stingið enda sveigjanlega kapals DisplayPort-merkis í tengið (2). Lokið síðan lásarmi sveigjanlega kapalsins (3).

  11. Setjið skjáinn á húsið með því að láta brúnirnar flútta.

  12. Leggið frauðstoðirnar tvær á borðið og látið línurnar á stoðunum snúa lóðrétt eins og sýnt er. Setjið húsið á frauðstoðirnar og látið skjáhliðina snúa upp.

  13. Lyftið skjánum rétt mátulega til að fjarlægja filmuna frá neðri brún skjásins. Endurtakið verklagið meðfram brún skjásins þar til filmurnar hafa verið fjarlægðar frá vinstri, hægri og efri brúnum.

  14. Takið filmuna af límdúknum. Rúllið sílikonrúllunni fram og til baka á límdúknum til að hreinsa hann.

  15. Rúllið sílíkonrúllunni sex sinnum yfir hverja brún skjásins.

  16. Þrýstið á brún skjásins með báðum höndum til að ná betri límingu. Fikrið höndunum meðfram brún skjásins og þrýstið niður á hverjum stað.

  17. Setjið skjáinn í frauðpokann. Leggið hann síðan flatan á hreint borð og látið skjáinn snúa niður. Bíðið í 30 mínútur eftir að límið festist bæði við skjáinn og húsið.

    •  Varúð: Ekki draga skjáinn eftir borðinu.

  18. Fjarlægið skjáinn úr frauðpokanum. Viðgerðinni er lokið ef sami skjár eða móðurborð var sett aftur í.

    1. Varúð: Ef skipt var um skjá eða móðurborð þarf að ljúka öllum skrefum sem eftir eru til að keyra kerfisstillingu. Gangið úr skugga um að tölvan sé Mac-tölva með Apple-hjálparforrit uppsett og USB-C hleðslukapal áður en haldið er áfram.

  19. Opnið Apple-hjálparforritið í Mac-tölvunni. Gangið úr skugga um að öll tilföng séu uppsett.

    • Athugið: Tíminn sem tekur að sækja og setja upp tilföng fer eftir hraða nettengingarinnar.

  20. Apple-hjálparforritið birtir skilaboð sem segja: „Connect a device or tool.“ (Tengdu tæki eða verkfæri)

  21. Stingið rafmagnskapli skjásins í samband við rafmagn.

  22. Stingið öðrum enda USB-C hleðslukapalsins í samband við Mac-tölvuna. Stingið síðan hinum enda USB-C hleðslukapalsins í Thunderbolt 3 tengið aftan á skjánum. Thunderbolt 3 tengið er lengst til hægri.

  23. Þegar Apple-hjálparforritið greinir skjáinn hefst kerfisstilling sjálfkrafa.

  24. Ef kerfisstilling heppnast birtir Apple-hjálparforritið skilaboð sem segja: „Completed System Configuration.“ (Kerfisstillingu lokið)

 Varúð

  • Ef kerfisstilling er trufluð, hætt er við eða villa kemur upp mun Apple-hjálparforritið birta skilaboð þar sem viðgerðaraðila er bent á að hafa samband við verkstæði með sjálfsafgreiðslu til að fá aðstoð.

  • Ef skipt var um skjá er ekki víst að birtustig skjásins, „Réttur tónn“ og „Í miðdepli“ virki sem skyldi fyrr en að lokinni kerfisstillingu.

  • Ef skipt var um móðurborð birtist viðvörunartákn og „support.apple.com/display/restore“ á skjánum þar til kerfisstilling hefur verið gerð.

Birt: