MacBook Pro (16 tommu, 2021) Sveigjanlegur kapall fyrir stjórnunareiningu rafhlöðu
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lesið Öryggi rafhlöðu og fylgið leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
ESD-örugg flísatöng
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Losun
Mikilvægt: Skiptið um sveigjanlega BMU-kapalinn ef hann skemmist.
Flettið sveigjanlegum kapli snertiborðsins frá til að komast að sveigjanlega BMU-kaplinum.
Flettið pólýesterfilmunni af lásörmum sveigjanlega BMU-kapalsins.
Notið svarta teininn til að spenna upp lásarminn á tengi fyrir sveigjanlega BMU-kapalinn.
Notið ESD-örugga töng til að taka enda sveigjanlega BMU-kapalsins varlega úr sambandi við tengið.
Samsetning
Notið ESD-örugga töng til að stinga enda sveigjanlega BMU-kapalsins í samband við tengið.
Notið svarta teininn til að loka lásarminum á tengi fyrir sveigjanlega BMU-kapalinn.
Þrýstið pólýesterfilmunni yfir tengið.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: