iPhone SE (3. kynslóð), inngangur
Þessi handbók inniheldur tæknilegar leiðbeiningar um hvernig skuli skipta um upprunalega Apple-varahluti í iPhone og er ætluð tæknimönnum með þekkingu, reynslu og verkfæri sem þarf til að gera við rafeindatæki.
Mikilvægt
Lestu alla handbókina áður en lengra er haldið. Ef þú treystir þér ekki til að framkvæma viðgerðir samkvæmt leiðbeiningunum í þessari handbók, skaltu ekki halda áfram.
Notaðu alltaf nýjustu útgáfuna af þessari handbók sem finna má á support.apple.com/en_US/manuals/iphone.
Viðvörun
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá Apple eða rétt verkfæri ekki notuð getur það valdið bruna eða öðrum öryggisvandamálum og leitt til líkamstjóns eða dauða.
Varúð
Ef viðgerðarleiðbeiningunum er ekki fylgt eða upprunalegir varahlutir frá Apple eða rétt verkfæri ekki notuð getur það skemmt iPhone, íhluti eða aðrar eignir, eða skaðað virkni tækisins eða vatnsheldni.
Upplýsingar um ábyrgð
Skemmdir af völdum viðgerða sem ekki eru framkvæmdar af Apple eða viðurkenndum þjónustuaðila Apple heyra ekki undir ábyrgð Apple eða AppleCare-áætlanir. Slíkar skemmdir geta valdið því að það þurfi að greiða fyrir viðgerðir og þær séu utan ábyrgðar eða orðið til þess að ekki verði hægt að gera við tækið hjá Apple eða viðurkenndum þjónustuaðilum Apple.
Verkfæri og varahlutir
Verkfæri
Verkfæri frá Apple eru hönnuð til að þola viðeigandi hita, afl og átak við viðgerðir og til að þola mikla notkun.
Skjápressan setur nægilegan þrýsting til að nýtt lím nái að taka sig við ísetningu á skjá. Skjápressan er notuð með viðgerðarbakka sem er hannaður með stærðir tækisins í huga.
Rafhlöðupressan setur hæfilegan þrýsting til að nýtt lím nái að taka sig við ísetningu á rafhlöðu. Rafhlöðupressan er notuð með viðgerðarbakka sem er hannaður með tilteknar stærðir tækisins í huga.
Pantanir á verkfærum og varahlutum
Hægt er að finna upplýsingar um það hvernig á að panta upprunalega varahluti og verkfæri frá Apple á support.apple.com/self-service-repair. Við kaupin skal slá inn auðkenni handbókarinnar sem finna má neðst á efnissíðunni til að sýna að þú hafir lesið alla þessa handbók og staðfestir að þú hafir þekkingu og reynslu til að sinna fyrirhugaðri viðgerð.
Hugbúnaðarverkfæri
Kerfisstilling gæti verið nauðsynleg þegar viðgerð er lokið. Kerfisstilling (System Configuration) er hugbúnaðarverkfæri sem er notað að lokinni viðgerð á ósviknum íhlutum frá Apple til að ljúka viðgerðinni. Kerfisstilling hefur margvíslegan tilgang sem er mismunandi eftir því hvaða varahluti verið er að skipta um.
Það sem kerfisstilling gerir | Hvers vegna þetta er mikilvægt |
---|---|
Flytur verksmiðjustillt kvörðunargildi | Ákveðnir varahlutir á borð við skjái, myndavélar og skynjara fyrir umhverfislýsingu hafa sín kvörðunargildi sem eru sérsniðin fyrir hvern einstakan varahlut við framleiðslu. Flutningur á þessum gildum tryggir hámarksvirkni og gæði eftir viðgerð. |
Tengir Secure Enclave við lífkennisannvottunarhluti | Eftir viðgerðir á móðurborði eða lífkennisannvottunarhlutum (snertiauðkenni eða andlitsauðkenni ) , þarf að tengja lífkenniskynjara við Secure Enclave á móðurborðinu til að tryggja öryggi tækisins. |
Tryggir heilleika viðgerða | Eftir viðgerðir á vélbúnaði eru athuganir á hugbúnaði framkvæmdar til að tryggja heilindi viðgerðarinnar. Heilindi viðgerðar þýða að upprunalegur varahlutur frá Apple hafi verið réttilega settur í. |
Úthlutar þráðlausu svæði | Til að uppfylla reglur um samskipti verður að úthluta móðurborðinu þráðlausu svæði. |
Uppfærir fastbúnað | Ef fastbúnaður er uppfærður hefur tækið alla nýjustu öryggisvirkni og afköst. |
Kröfur um kerfisstillingu
Nýjasta útgáfan af iOS - ekki prófunarútgáfa - á iPhone
Öflug Wi-Fi-tenging með 1,0 Mbps niðurhals- og upphleðsluhraða, með minna en 400 ms biðtíma og minna en 2% pakkatapi. Áætluð gagnanotkun við að keyra kerfisstillingu er 6–22 MB.
Hvernig á að hefja kerfisstillingu
Þú hefur kerfisstillingu með annarri af tveimur eftirfarandi aðferðum en það fer eftir varahlutnum sem skipt var um:
Settu tækið í greiningarham. Ýttu á Start Session (hefja lotu) og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
eða
Hafðu samband við netverslunina þar sem þú keyptir upprunalegan varahlut frá Apple. Sjáðu support.apple.com/self-service-repair.
Sjáðu viðkomandi viðgerðarkafla í þessari handbók til að fá frekari upplýsingar.
Viðvaranir
Ef viðvörunum er ekki sinnt getur það leitt af sér eldsvoða, líkamstjón, gagnatap eða skemmdir á tækinu, varahlutum eða öðrum eignum.
Viðvörun | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á líkamstjóni | |
Varúð | Leiðbeiningar til að draga úr hættu á gagnatapi eða vélbúnaðarskemmdum | |
Mikilvægt | Viðbótarupplýsingar til að framkvæma aðgerðir á árangursríkan hátt; hvorki viðvörun né varnaðarorð |